Killer Queen
þriðjudagur, mars 30, 2004
Jæja....... sit ein inni í stofu, BBCPrime malar í sjónvarpinu og ég borða súkkulaðihúðaða banana og drekk diet coke.
Ég hef nú kannski ekki mikið að segja..... en ég ætla samt að reyna. Kom heim úr vinnunni og ætlaði að vera gífurlega afkastamikil, þrífa og skella mér svo í sturtu.... en ég rétt svo hafði mig í það að steikja mér hamborgara og svo fleygði ég mér á rúmið. Lá þar í myrkrinu og starði út í loftið, dauðuppgefin. Hélt að ég væri búin að týna náttúrunni í mér, en svo virtist ekki vera. Leitandi hendur fóru af stað á þurfandi líkama og innan skamms var ég týnd. Týnd í sjálfri mér. Lá í náttbuxum og lopapeysu með hendina innan á mér og stundum varð allt svart og ég reygði höfuðið aftur og mig svimaði og hugsanirnar fóru hingað og þangað.... þangað og hingað, eins og hendin...... ;)
Svo er ég að fara til Skotlands. Eftir 2 mánuði. Shit! Kom bara heim einn daginn úr vinnunni, settist niður fyrir framan tölvuna, fór inn á www.icelandair.is og bókaði ódýrasta far sem ég fann. Og núna er ég alveg bara FOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOCK! Á eiginlega engan pening (jú, ég er að vinna. En ég á visakort... sem er svoddan óhemja!!) Ég er að fara til Skotlands.
Ég er að fara að hitta hana Trixibelle á morgun. Við ætlum að fíflast og fara svo á SEXY JESUS MOVIE!
(Fer ég beint til helvítis fyrir að segja þetta??) Fyrir þá sem vita það ekki, þá er Trixibelle besta vinkona mín (og ég er ekki bara að segja þetta af því að ég veit að hún les bloggið mitt!!!)
Hún Trixie.... treður puttunum á sér í naflann á sér og þefar svo af þeim og segir manni hvað það er vond lykt af þeim. Hún sendir mér sms á nóttinni, þegar hún situr á klósettinu með niðurgang eftir að hafa étið saltpillur og drukkið ávaxtasafa með. Núna verð ég víst að segja eitthvað fallegt um hana..... hmmmm?? :)
Hvað á ég að segja næst??
mánudagur, mars 29, 2004
Núna hefur íslenska ríkisstjórnin fengið mig til að skammast mín fyrir að vera Íslendingur. Ég þakka kærlega fyrir það.
60 manna íslensk hersveit til Afganistan?? Ég þarf aðeins að gapa og nötra af reiði áður en ég segi eitthvað meira.
Björn Bjarnason má vinsamlegast vaða í rassgat og taka ríkisstjórnina með sér.
Já... ég stóðst nú ekki mátið!! Fyrst að ég er farin að teygja anga mína út á veraldarvefinn, þá verð ég nú að segja eitthvað meira!!
Vinkona mín er að koma heim frá Danmörku næstu helgi. Ég hlakka ógeðslega til. Get ekki beðið eftir að fá kvikindið heim til mín!!! :) Við ætlum að sjálfsögðu að gera eftirfarandi:
a) Horfa á Braveheart og grenja
b) Fara á fyllerí
c) Horfa á sæta stráka
Mark, this one's for you:
I have a Scottish friend. His name is Mark and he's fabulous. He has taught me many things. Most importantly how to moan when I have wilder-beast-style sex with Scottish men.
OCH AYE THE NOO!
Jæja......... þá er komið að því!
Bloggið mitt er fætt!
Í dag hef ég nú ekki ýkja mikið að segja. Ég var búin snemma í vinnunni og skreið heim, með smá viðkomu í Bónus til að kaupa súkkulaðiköku! Svo ætla ég að liggja hérna..... í leti.... horfa á spólu (veðja á Woody Allen í dag) og hnykla á mér tærnar ;)