<$BlogRSDURL$>
Killer Queen
föstudagur, apríl 30, 2004
 
Dingggggrrrriinnnnngiiiirrrrrinnnnngggggggggg!
Dong!
Goooooooooooooong!

Komið öll sæl og blessuð!

Ég er í alveg afskaplega skaplegum sköpum í kvöld. Gamla settið var að fara.... þau vöskuðu samt upp áður en þau fóru. Þau báðu mig um það, en ég lét svo illa að þau ákváðu að gera það. Ég held að DEMON CHILD-köstin sem ég fékk í æsku séu enn ljóslifandi í minningu móður minnar...
Ég man ekki eftir einu atviki í æsku, en mér var sagt það að mamma ætlaði að halda saumaklúbb eitt kvöldið. Hún var upptekin yfir daginn við að þrífa og þeyta rjóma og hafði ekki tíma til að sinna mér. Ég var svona 5 ára og fór í mikla og alvarlega fýlu. Í staðinn fyrir að láta það í ljós með hefðbundnum hætti (öskur, öskur, öskur, svo fallið í gólfið með steytta hnefana), þá náði ég í skærin, skreið upp á stofuborð og klippti dúkinn. Var einhver voða merkilegur blúndudúkur, en hefnd barnsins er blind á slík veraldeg verðmæti. I just didn't feel very loved :(
Það var nú líka alltaf einhver dularfull bót á sófabríkinni í gamla daga..... komst að því síðar að það var líka mitt verk. Rauk í fýlu og var alveg ómöguleg, en það eina sem friðaði sálina var það að sitja í sófanum og grafa í hann með tvinnaskærum.
Hmmm. Líður dáldið eins og Chucky núna.....
En ég var samt mjög yndislegt barn. (Það er allavega ekki búið að afneita mér enn þá ;)

Kvöldið verður eitthvað svona:
T-X
Baileys
Drunk

Annars þarf ég að taka áskorun frá henni Curly. Er allllllllllllllllllltttttttttttttttoooooooooooof dónaleg fyrir bloggið mitt, en ég segi ykkur kannski hvernig það gengur.
Crap.

Let's bring out the lube!





 
Var að koma heim.
Var boðið í mat hjá Ritu og Anandi, sem sjá um yogað. Lasagne, vöfflur og indverska myndin LAGAAN. Sem er 3,5 tímar. En hún er góð og tónlistin er æðisleg.
Fékk Visa-og símareikninginn. Mér til algjörlega óvæntrar ánægju, þá var hann ekki neitt neitt. Fjárhagurinn er því með betra móti og ég get andað rólegar. Skotland, Skotland. I won't love you with just my VISA-card!!! :)

fimmtudagur, apríl 29, 2004
 
Jæja, jæja, jæja!
Þetta var nú hinn ágætasti dagur!! Kyntröllið og Finnegan komu til mín í vinnuna..... og líka einhver nærbuxnalaus maður......... definitely not hiding his salami!! (And....well, what a very lovely salami, indeed, I might add! ;)
Fór í klippingu. Leið fyrst mjög VOGUE. Svo eins og Koggu leirlistamanni. Og svo mjög VOGUE aftur.
Fór svo með Trixie út á borða á Austur-Indíafjelagið... og svo í ís. Og svo auðvitað heim til Trixie til að horfa á síðustu þættina af Sex&theCity. Bahhhhhhhhhh! (Fyrir ykkur lúðana, þá gæti verið skemmtilegt að taka eftir því að þegar Carrie fer út að borða með fyrrverandi eiginkonu Aleksandr, Juliet.................... þá er hún leikin af engri annarri en CAROLINE BOUQUET! (Sem, lúðar, lék MELINU HAVELOCK í 007-myndinni FOR YOUR EYES ONLY)) Virkilega falleg kona.
Oh! Lesbian love list!!

1. Monica Bellucci. Það fallegasta sem ég hef nokkurn tímann augum litið.
(er að renna upp fyrir mér að lesbískur listi er mun erfiðari heldur en mannalisti..............)
Öhhhhhhhhhh...
Elizabeth Taylor
Marilyn
Rita Hayworth
Ava Gardner
Anjelica Huston
Kate Winslet
Angelina
Liv Tyler
Sharon Stone
Angelique (var einhvern tíma í einhverjum skelfilegum BACHELOR-þætti :(

Og Bondínurnar mínar:
Domino Derval
Xania Onatopp
Honey Ryder
Tatiana Romanova
Pussy Galore (nafnið, nafnið!)
Sophie Marceau

Oh, bloody hell! Gorgeous women everywhere!!!!!!!!! Gahhhhhhhhhhhhhhhhh!







þriðjudagur, apríl 27, 2004
 
Var að koma heim af Fag Night hjá Curly Wurly. Ógeðslega gaman, eins og alltaf :) Veit núna alveg helling sem ég vissi ekki um ANAL SEX. Annars er Finnegan búin að vera duglegur að uppfræða mig. Hann einmitt kom skemmtilega á óvart í dag og kom í heimsókn til mín í vinnuna. Og svo kom Kyntröllið, sem lét ódauðleg orð falla af vörum sér: I WAS BORN TO DANCE! Og svo fórum við að tala um ósiðlegar push-ups. Veit ekki af hverju við erum farin að tala svona subbulega!!!!!! Kyntröllið.... used to be one of my few, pure friends.
En að venju, þá hef ég ekkert nýtt að segja. Kelly Jones enn þá hotter than hell. Kann ekki enn þá að setja inn svona comment-kerfi á bloggið mitt. Obviously, I'm an idiot.

 
Var að koma heim úr vinnunni. Er með Sinalco í klaka. Yeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeessss!
Er strax farin að láta mig dreyma um næstu helgi. Systir mín ætlar til Köben og bað mig um að passa húsið. Heitapottur, þráðlaust net og rúm sem er 2x2m. Can a wee girl ask for more?? Ég, Baileys og heitur pottur.
Keeeeeeeeeeeeeerrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrang!
Klukkan er hálffjögur. Veit ekki hvort að ég eigi að vera löt eða fara að gera eitthvað af viti. Hmmmm.
Löt. Pottþétt. Sinalco & 007.

Jæja, er farin að skoða myndir af Kelly Jones á netinu.
Ah! Sem gefur mér tilefni til þess að setja saman lítinn lista........... ;)

Sexy hunks:
1. Alan Shearer
2. Liam Neeson
3. Robson Green
4. Kelly Jones
5. James Gandolfini
6. Robert De Niro
7. Louis Figo
8. Sean Connery
9. Claudio Ranieri
10. Russell Crowe.

(Birist með fyrirvara um sífelldar breytingar)


Saddle up, partner ;)

mánudagur, apríl 26, 2004
 
Life, by Shirley

stinks,sucks,blows..


 
Very sexy guy list:

1. Alan Sherarer
2. Sean Bean
3. Kelly Jones
4. Robert De Niro
5. Robson Green
6. James Gandolfini
7. Claudio Ranieri
8. Russell Crowe
9. Sean Connery
10. Louis Figo

Ahhhhhhhhhhhhhhhhhhh. So many men, such little time!!!
:)

 
I love you, Kelly Jones!!!!!!!

sunnudagur, apríl 25, 2004
 
Misty Mountain Hop

Aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa! I think I'm going slightly mad!
Ok. Ég er hrifin af einhverjum. En veit ekki alveg hverjum. Koma a.m.k. 3 til greina. Ýkt hrifin. Mis hrifin.
HIM, HIM, HIM, HIM!
But which one??

 
Hugleiðing dagsins:
Er ég MEIRA biluð eða MINNA biluð heldur en aðrir???

Varð bara að spökulera í þessu... yfirleitt líður mér eins og ég sé MEIRA biluð heldur en aðrir.... en svo koma stundir þar sem mér líður betur... og held virkilega að ég sé MINNA biluð en aðrir.... Ég veit það ekki.
We need a ruling on this....



fimmtudagur, apríl 22, 2004
 
Takk fyrir veturinn, gott fólk og gleðilegt sumar!! :)
Síðasta kvöld vetrarins varð ekki neitt ógurlega gott. Ef ég var ekki með niðurgang á klósettinu, þá var Trixie hálf ofan í baðkarinu, ælandi. Mér kemur það samt alltaf á óvart hvað það kemst mikið æl fyrir innan í manni. Maður getur hangið endalaust yfir klósettinu og kúgast.... en það hættir ekki. Þetta svo mikið, að maður er alveg við það að kafna þegar maður er að koma þessu frá sér. Mér finnst það verst. Þegar ég ligg ofan í klósettinu, gubbandi, með stórar áhyggjur af því að ég eigi eftir að DEYJA ÚR MÍNU EIGIN ÆLI AF ÞVÍ ÉG GET EKKI ANDAÐ! "COD: She puked herself to death."


sunnudagur, apríl 18, 2004
 
(Færsla mánudagsins 12.apríl er skotin í skít! Andskotans!!!!!!!!! Gahh!)
Anylouwho. Var að vakna. Er að drekka Sinalco með klaka. Mmmmmmmmmmmmm! Pretty goddamn sweet, people.
Undanfarið er ég búin að sæta mikilli gagnrýni fyrir mikinn áhuga minn á sjálfsfróun. Þetta þykir eitthvað furðulegt. Hey, mér finnst það bara gott. ...and my best orgasm is, of course, self-served ;)

Topp 8 sjálfsfróunarlög (gildir líka fyrir kynlíf með öðrum)
1. Whole Lotta Love m/Led Zeppelin
2. Since I've been loving you m/Led Zeppelin
3. Voodoo Child m/Jimi Hendrix
4. Black m/Pearl Jam
5. Dancing Barefoot m/ U2
6. Iron man m/Black Sabbath
7. Rocket Fuel m/Brain Police
8. Skoski þjóðsöngurinn (Scotland the Brave)



Svínvirkar á mig, allavega..... :)


fimmtudagur, apríl 15, 2004
 
Jææææææææææææææææææææææææææææææææææja!
Ætla bara að tilkynna það að ég myndi sofa hjá Steven Tyler. Ég er að horfa á þátt um Aerosmith á VH-1. Eat me!

miðvikudagur, apríl 14, 2004
 
Og ég ætla að nota tækifærið og þakka Kyntröllinu innilega fyrir að hafa farið og náð í snúð handa mér í dag. Takk :)

 
Er nokkuð asnalegt að tala um það á blogginu sínu hvað maður er graður??

mánudagur, apríl 12, 2004
 
Also....
Lá uppi í rúmi á föstudaginn langa. Var að hlusta á soundtrackið úr The Passion. Gróf mig undir sængina og umlaði. Skyndilega! Bah! Hvað var þetta??? Einkennileg þögn. Ótrúleg hugarró. Ekkert. Ekkert. Lyfti höfðinu frá koddanum, leit í kringum mig, skelfingu lostin. Hvað var þetta?? Og svo starði ég út í þögult loftið og fattaði það. Ég ætla ekki að segja ykkur hvað það var.... ekki strax, allavega ;)

Finally, I have myself back. Well, almost.

 
Ding dong!

MÁLSHÁTTUR: ANNARS BYRÐI ER ÖÐRUM LÉTT
Annar í páskum. Ég er á leiðinni út á vídeóleigu. Ef ég fer ekki, enda ég á því að horfa á The O.C.
Búin að éta tékkneskar pizzur og borða nammi þessa páskana.... fara á djammið og mara eins og skata uppi í sófa. Pretty bloody fantastic, dahhhhling!! :)
Búið að vera hálf-glataður dagur.... Fór með Shirley út á flugvöll, sat þar og tók við leiðinda athugasemdum um mitt annars ágæta sjálf (skv. öðrum er ég úfin og orðljót.... og við skulum ekki gleyma því að ég er ekki með bílpróf. Staðreynd sem er annað fólk fær ekki leið á að pæla í) Fuck off! I'm doing this for the environment!
Svo hélt systir mín matarboð í gær. Bauð hinni systir minni, EN EKKI MÉR! Allt fullt af ást og kærleik....
Eftir að hafa lufsast um alveg andskoti bitur og leið, þá skreið ég loksins upp í rúm. Hlustaði á soundtrackið úr THE PASSION, sofnaði, vaknaði, gaf skít í það að vera á túr og tók tvennu með Louis Figo í búningsklefanum hjá Real Madrid, dreif mig á lappir og fékk mér hamborgara og ískalt kók. Leið betur :)
En er orðin bitur aftur.... ætla því að dengja mér niður á vídeóleigu og taka einhverja dramatíska epík, lágmark 3 tímar!!!

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ, TRIXIBELLE :)

fimmtudagur, apríl 08, 2004
 
Gleymdi að segja ykkur að ég sá Guð í gær. Á djamminu. Hann er með brún augu. Og reyndar killer rass. Killer body, all round. (Æ! Má ekki tala svona um Guð.....)

 
Hallu,hallu.
Ég var átakanlega þunn fyrir svona hálftíma síðan. Tók þá upp á því snjallræði að fara út í Bónus og kaupa mér bakaðar baunir, svona til að lifa af páskaföstuna.
Svo er pæjukvöld í kvöld. Pæjurnar ætla að koma í heimsókn. Við ætlum að sitja í sófanum og segja: „Ohmygod!!!!“. Minnir mig á skiptið þegar hún Trixibelle kom síðast í heimsókn. Við lágum uppi í rúmi að horfa á SATC. Allt í einu! Sleikir hún á sér fingurinn og treður honum inn í eyrað á mér!!!!!! Mér finnst þetta segja meira en mörg orð um hana Trixie.... og svo fórum við að tala um þetta: Hvort vill maður blautan putta eða typpi inn i eyrað. Persónulega, þá kýs ég að fá frekar lim í eyrað heldur en sleiktan fingur. Ég get ekki lýst þessari ógeðslegu tilfinningu sem vaknar innra með mér þegar ég fæ þetta flipp í eyrað. Og djöfull hló hún Trixie! ( í hennar orðum: „Ég hló eins og motherfucker!“) Tík ;)
En ég óska henni samt innilega til hamingju með daginn. Henni og Vile! Vile! á afmæli í dag. Hann er something-something... GOD KNOWS HOW OLD! ;)
En ég kveð í bili.....

miðvikudagur, apríl 07, 2004
 
MY BRAIN HURTS



Er ýkt bitur og kynferðislega óhamingjusöm í kvöld. Rassinn á mér er ekki eins og rassinn á Caprice.
Er farin að horfa á Seinfeld í mínu myrka og ógeðfellda horni.
Ciao....

mánudagur, apríl 05, 2004
 
Well, hellú!
Ég sit hérna, iðandi, fyrir framan tölvuna. Var að fá lánaða Seinfeld-spólu hjá T-X. Manneskjunni sem fékk mig í dag til að standa upp og taka skítinn framan úr mér og kasta honum framan í þann sem kastaði honum fyrst í mig!!!! The unbeatable law of kindergarten!!!!
Lásu ekki allir söguna um moldvörpuna sem vildi vita hver skeit á hausinn á sér?? ;)


sunnudagur, apríl 04, 2004
 
Ég býð ykkur góðan daginn hérna úr mínu heldur ógeðslega horni.... Fór að djamma í gær og sit hérna í hrúgu, úfin og illa lyktandi með skelfilegt óbragð í munninum. Er að drekka kók og hlusta á George Popadopalopadous.... Er farin að renna hýru augu til kalda Hlöllans sem liggur hérna við hliðina á mér.... kalt majónes og rækjur í blautu brauði..... pretty bloody fantastic, darling :)

Ég ætla svo að skella mér í sturtu og liggja svo yfir Absolutely Fabulous í dag.... Fara svo í útigallann og fara til hennar Curly.... WET MEL GIBSON NIGHT.... sem þýðir að við ætlum að horfa á Lethal Weapon 2.... :)
En að venju, þá hef ég ekkert merkilegt að segja....

laugardagur, apríl 03, 2004
 
Jææææææææja!
Núna er Shirley girl að koma yfir til mín með bland og Southern Comfort.... Heinekenin bíður eftir mér kaldur í ísskápnum..... og svo er bara að setja á sig pæjuskóna og varagloss..... Boys, beware!
Er nú ekki að hlusta á fjörugasta pre-party lagið.... "Careless Whisper" með George Michael.... Er bara í einhverjum nostalgískum 80's fíling. REMINDS ME OF MY YOUTH!!!!!!

To my Scotsman:
In a few hours I'll be drunk. Possibly very drunk. I will try to remember to put on a bra before I go out. I will try to kiss a girl. And then I'll meet you on msn and tell you all about it
Lurv :)

fimmtudagur, apríl 01, 2004
 
Fór á The Passion í gær. Ætla að hafa um þetta sem fæst orð, en sem flest tár. Kom heim í nótt, náði í Biblíuna úr bókahillunni og las mig í svefn.
Hún Shirley mín er að koma heim á morgun. Lendir á Leifi annað kvöld. Best að muna eftir því að hlaupa í ríkið á morgun fyrir vinnu, ná í bjór. En hvaða bjór?? Ég er komin svo stutt í bjór-þróun minni að ég er ekki búin að finna bragðið mitt. Tuborg, Carlsberg. Geri ráð fyrir að Grolsch eða Heineken verði fyrir barðinu á mér núna um helgina. SYMPATHY FOR THE BEER!
Annars er mamma að svelta mig í hel!! Hún er að baka einhverja ógurlega kransaköku, sem þýðir að ég má ekki reka loppurnar inn fyrir eldhúsdyrnar. Páskafastan byrjar snemma í ár ;)
Annað..... gamall bólfélagi mætti í vinnuna til mín í dag. Nr.4 (otherwise known as: Shag-on-sofa-while-wathcing-the-news) Byrjaði á því að þekkja hann ekki, fatta það svo, náfölna og svitna svo köldum svita...... ;)
Þegar ég fór svo úr vinnunni, setti ég geislaspilarann í gang, til að heyra "Roxanne" í útgáfu George Michael.....
I just love the smell of irony in the evening ;)



Powered by Blogger