Killer Queen
fimmtudagur, júlí 29, 2004
A FLAMING SNOWBALL IN HELL
Gahhhhhhhhhhhhhhhhhh! Það virðist allt vera að fara til fjandans!! Ég sit núna sem óð væri við tölvuna og mergsýg vini mína á MSN. Godddammmmmnit!
Ps. Ég fór út að leika með frænku minni í gær. Ég var að kenna henni að nota stultur. Hún er 7 ára. Og ég sagði henni að ég hefði leikið mér á stultum úr tré þegar ég var lítil. Um það bil á sama tíma og risaeðlurnar gengu um á jörðinni. Þá kom einhver vinur hennar, geðveikur gæji, 9 ára. Spurði mig hver ég væri. Og hvað ég væri gömul. Ég sagði 22ja. „Núú?“ svaraði guttinn „Ég hélt að þú værir ekki eldri en tvítug...." Smooth talking son of a gun.
miðvikudagur, júlí 28, 2004
Lunchbox Sally
Eftir 2 daga fer ég í Dalinn. "Even though I walk through the valley of the shadow of death..." Sálmur 23 eftir MC Jesús er ekki alveg á tæru hjá mér... en jæja.
Ég fór í Rúmfatalagerinn áðan. Er búin að kaupa bakpoka sem heitir URANUS, tjald sem heitir THOR og svefnpoka sem heitir PEGASUS. Hvað halda þeir eiginlega að maður sé að fara að gera??
Thule, Smirnoff og skoskt Tunnock's súkkulaðikex. Og smokkar. If in case Chucky gets lucky.
Og einnota myndavél (to take pictures when Chucky gets lucky...... :P)
Hversu góð er kókómjólk??? Mmmmmmmmmmmmm! :)
Og hversu sexý er Burt Reynolds???? Hafiði séð DELIVERANCE?? (Hehehe. "That one's sure got a pretty mouth....")
Gotta go!
AGNES OG FRIÐRIK
Kalt blés norðanvindur, janúarmorgunn
er Agnes og Friðrik lögðu af stað.
Kaldur stóð bændaskarinn
þeim var vorkunn.
Skelfdir horfðu á axarinnar blað.
Natans bróðir fylltur beisku hatri.
Hönd Friðriks köld sem á ná.
Presturinn hvíslar
„ljúkum þessu af í snatri.
Höggðu vel svo drottinn megi sjá“.
Friðrik fölur stóð uppí vindinn.
Orð prestsins féllu frosna jörðu á.
Bændur stundu: „Stór er syndin“.
Er Friðrik lagði höfuð sitt stokkinn á.
Tryllt af ótta Agnes frá sér barði
er höfuð Friðriks búknum rúllaði frá.
Blóðhlaupin augu, slef úr vitum hennar lagði,
Rósin Kiðaskarðs varð eins og hrímgrátt strá.
Breiðabólsprestur með konungs snaps í hendi,
skipaði Agnesi að standa, en Agnes lá.
Yfirvald Blöndal böðlinum brennivín sendi
til að bægja efanum sálu hans frá.
Hjalandi eins og smábarn í dauðann hún starði.
Með afli þeir létu hana krjúpa fótum hans hjá.
Blöndal keikur stóð á hæsta garði.
Hún öskraði: „Bændur lítið upp, þið skuluð fá að sjá“..
Natans bróðir allan sinn styrk í höggið lagði.
Blóð og þvag slettust frosinn mel á.
Bændaskarinn stundi þungt, en í þetta sinn þagði.
Þegar höfuð þeirra á stöngum fóru þar hjá.
þriðjudagur, júlí 20, 2004
Fékk póst í dag frá Cosmo Girl. Why don't you have a boyfriend? BECAUSE I HAVE A DILDO THAT TOOK JAPANESE SCIENTISTS 15 YEARS TO DEVELOP!!!!!!!!!! Assholes!!!!
Anylouwho. Ég fór í Debenhams í dag. Af einhverjum óguðlegum ástæðum labbaði ég út með 4 g-strengi. Hey, þeir kostuðu bara 300 kr. Ég sem hef verið trygg og trú ömmurnærbuxunum mínum í fjölda, fjölda ára. Hef ekki verið með reim í rassinum frá því að ég var 17 ára. Which makes me rather old. En ég hef átt margar góðar stundir með ellilífeyrisþegunum í Marks&Spencer, skoðandi risastórar bómullarnærur í draumkenndum heimi........ nothing crawls up your ass in that place :)
Ég veit ekkert hvernig þetta fer..... (og það er í alvörunni til lag sem heitir Air on the g-string )
Flóttamenn eru bara pretty damn sexy, a.m.k. samkvæmt kanadískum sjónvarpsmyndum. Kolbikarsvart hár, kaffibrún augu, dökkt og mikið skegg, þétt bringuhár....*Baaaaaaaaaaahhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh*
(And I do wonder: Do people sign up for the Red Cross for sexual reasons??)
Russell Crowe. Does anybody remember? Gladiator er sennilega besta klámmynd sem ég hef nokkurn tíma séð. Russell, löðrandi í svita og sandi, í leðurminipilsi. What we do in life, echoes in eternity. Yeah, man. Whatever. Just mount that horse again................ slowly.......... Ohmygod, that makes mummy happy! So happy!!!!!! :D
Ok. Er með störu af hryllingi. Var að skoða allt dótið sem mér langar í á http://www.playboy.com/ Komst að því að nærfötin eru eiginlega öll í einni stærð (one size fits all).... en svo er til sérstök queen size... sem er stærð 14. If 14 is queen, than I'm a goddamn gorilla!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! BUTZILLA!
What's the matter, sweetie?? Sweetie??
sunnudagur, júlí 18, 2004
Matrimonio all'Italiana
a) Sophia Loren has lovely knockers
b) Marcello Mastroianni is pretty fabulously handsome
Ok. Sophia Loren er líka ógeðslega falleg. *Sljúrp*
Ég er að hlusta á Tom Jones. With these hands. Gúrkan sagði að Tom Jones minnti hana alltaf á mig. Skemmtilegt. Eldgamall, gullskreyttur kalkúnabrúnn maður minnir hana á mig. En hann er samt fabulous. Just help yourself (to my lips) og It's not unusual. Can't knock a guy who does that ;)
Talandi um Gúrkuna. Hún fór á djammið um helgina (surprise, surprise!). Og hvern hitti hún? GUÐ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! But of course. Og ég heima á sófanum, slefandi yfir Burt Reynolds. It's not fucking fair.
:(
Og ég lifi í stöðugum ótta. Junior. You know. Horribly cute fella who brings books to the shop. Fór á fyllerí um daginn og Junior var líka þarna og einhvern veginn slapp orðið út (Kids I know know him... ble ble ble).... Og ég var þarna, í taugaáfalli á barnum. Hellti í mig og stakk af. Og núna horfi ég á bókastaflann í búðinni hverfa smám saman.... og þarf að hlusta á eigandann spyrja mig að því: „Er hann búinn að hringja út af bókunum??“ -„Neiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii“ SHIT FUCK FUCK SHIT!
Norges mest spiste pizza. Whatever. Ég er farin að horfa á Sex & the City.
miðvikudagur, júlí 14, 2004
ROCKY MOUNTAIN HIGH
Ég er ein heim að hlusta á John Denver. Some might call that sad. But I actually think I'm kinda cool............. ;)
mánudagur, júlí 12, 2004
Ich schaue vorwärts zu ihm an.
Hæ
Ég skrapp upp í sumarbústað um helgina. Fór á föstudeginum með Shirley og mömmu hennar. Það var svaka fjör. Líka af því að mamma hennar Shirley er enginn ordinary, boring mum. Algjör snegla!!
Og svo fór hún á laugardeginum og Gúrkan og Trixie komu í kofann. Byrjuðum að sjálfsögðu strax að hella í okkur, en ég reyndi að byrja varlega, sérstaklega þar sem ég var Commander in Grill Chief! Átum, drukkum og létum eins og fífl.... og þá kom Flugnaspaðinn. Ég ætlaði nú að reyna að haga mér sómasamlega, enda að hitta hana í fyrsta skiptið en það fór ekki betur en svo að ég endaði á gólfinu með Trixie... only a straight-jacket shy of being TOTALLY INSANE!!! Og svo kom Kyntröllið um nóttina, með leigubíl. Hringdi, sagði að sér leiddist svo heima svo að við plötuðum hann í heimsókn.
Ég vona að THE CRAZY CLAN hafi skemmt sér vel.... allavega þá hef ég sjaldan drukkið eins mikið og er enn þá svolítið þunn, á mánudegi.....
Ps. Athafnir helgarinnar voru teknar upp á einnota myndavél, stafræna myndavél og myndavélarsíma. Í sumarbústaðnum var fólk sem talist getur til professional tölvulúða jafnt og amatör-lúða.... og því er býsna líklegt að mitt sauðdrukkna sjálf, og allra hinnna sem voru þarna, muni birtast einhvers staðar á veraldarvefnum. In a galaxy far, far away.
miðvikudagur, júlí 07, 2004
sunnudagur, júlí 04, 2004
The day I went to see Metallica........ I hope they won't stink.
Ég er sumsé heima hjá mér; þunn, mygluð, ógeðsleg. Að hlusta á Will Young til að hita upp fyrir tónleikana. Doesn't make sense, does it?
Var að fá THE LONG FACE með Mínus. Þetta er geggjað lag. Makes me want some things :P
Í hverju á ég að fara??
föstudagur, júlí 02, 2004
WILL YOUNG!
Það er föstudagur. 2.júlí. Ég er í fríi í dag. Gamla settið ætlar að fara að veiða og ég verð ein heima. Vinna á morgun og Metallica á sunnudaginn. Á eftir að missa af úrslitaleiknum á EM. Damn. Luís Figo playing with his balls. Damn. Damn. Goddamnit.
....and I think about all the colours of booger....
Ég er að hlusta á Will Young og horfa á allt draslið í kringum mig. Inni í herbergi er mannhæðarhátt fjall af ömmunærbuxum. Nenni bara ómögulega að brjóta þær saman og ganga frá þeim. Þær eru bara þarna. Grandma thunder pants! Piles and piles and Gomer Pyles of underpants.