<$BlogRSDURL$>
Killer Queen
laugardagur, janúar 28, 2006
 
It ain't that bad

Ó, já, börnin góð. Ég dó úr ógeði í skólanum og skipti um fag. Ég er núna byrjuð í 4. faginu og finnst það bara skemmtilegt! Og, svo er ég með ógeðslega sexý kennara. Grrrrrrrrrrrrrrr!!! Í alvöru, hann er sex god. Ég elska sexý kennara. It gives one so much during class....... and then late at night, when nobody else is home.... :p


mánudagur, janúar 09, 2006
 
For your delight, oh my

Ég sit í tölvuveri uppi í háskóla, að bíða eftir að hraðkúrsinn byrji. Ég er nákvæmlega nill spennt. Og nenni sko ekki að byrja í skólanum eftir viku. Ohhh. Contemplating yet another career move.
I wish I could be a freelance James Bond consultant. But who would I consult?
Klassískt ég, nýbúin að fá íbúð á görðunum og þá nenni ég ekki lengur að vera í háskólanum. But mom, it's just that the kids are so boring!! But moooooooooooom!

Don't you "but mom" me!




fimmtudagur, janúar 05, 2006
 
Foxtrot

Ég er að pæla í að fara á róandi. Ég á að fá íbúðina mína afhenta á mánudaginn og hraðkúrsinn byrjar á mánudaginn. Á kvöldin ligg ég andvaka uppi í rúmi og bylti mér, með svimandi tilfinningu og magaverk. Svo sef ég slitrótt yfir nóttina, dreymir og dreymir og vakna með grjótharðan maga. Annaðhvort er ég með blæðandi magasár eða geimveru í maganum. Raaaaahhhhh!

En nú að skemmtilegri efnum:

Kynferðisleg upplifun í IKEA

Ég var í IKEA núna í vikunni og var þar að rölta, þegar ég sé þennan líka ógeðslega myndarlega karlmann. Sem kom svo í ljós að var Andrés Guðmundsson, kraftlyftingamaður og vöðatröll. Alltaf þegar ég hef séð hann í sjónvarpinu, þá lítur hann út fyrir að vera ógeðslega mikið krútt, lágvaxinn og ALVEG KRINGLÓTTUR AF MASSA. Ó, nei! Aldeilis sérdeilis ekki! Hann er ábyggilega 190cm og frekar Liam Neeson-legur í vaxtarlagi; hávaxinn, með langar grannar/stæltar lappir og bara A GREAT BIG HUNK OF A MAN!! :O Shirley fannst hann samt með ýkt ljótt kartöflunef, en mér finnst það bara ógeðslega flott. Huge, gorgeous, gorgeous man!!! Á dauða mínum hef ég oft átt von á, en aldrei því að verða fyrir kynferðislegri uppljómun í IKEA! Enda hljóp ég beint í matsöluna og keypti mér Pepsi og pulsu með því, og hámaði það svo í mig af mikilli áfergju................

(Hmmmmmm, hefur þetta blogg of mikinn kynferðislegan undirtón?)

Jæja, þá er það Dolly Parton og lagið 9 to 5.











Powered by Blogger