<$BlogRSDURL$>
Killer Queen
föstudagur, febrúar 10, 2006
 

What it feels like for a girl

Madonna er æðisleg!! Ég sá hana á Grammy-verðlaununum og yowsa, hún er algjör skutla. 45 ára og algjör beib. Og ég elska nýja lagið hennar. Ég elska bara Madonnu svo geðveikt mikið! Og ég elska þetta hérna lag líka:

Girls can wear jeans
And cut their hair short
Wear shirts and boots
'Cause it's OK to be a boy
But for a boy to look like a girl is degrading
'Cause you think that being a girl is degrading
But secretly you'd love to know what it's like
Wouldn't you
What it feels like for a girl
Silky smooth
Lips as sweet as candy, baby
Tight blue jeans
Skin that shows in patches
Strong inside but you don't know it
Good little girls they never show it
When you open up your mouth to speak
Could you be a little weak

Do you know what it feels like for a girl
Do you know what it feels like in this world
For a girl
Hair that twirls on finger tips so gently, baby
Hands that rest on jutting hips repenting
Hurt that's not supposed to show
And tears that fall when no one knows
When you're trying hard to be your best
Could you be a little less
Strong inside but you don't know it
Good little girls they never show it
When you open up your mouth to speak
Could you be a little weak
In this world
Do you know
Do you know
Do you know
what it feels like for a girl
What it feels like in this world

Annars er bara blússandi stemmning. Eða svona. Ég er enn þá að þvo mér eftir að hafa séð brot úr Köllunum.is með Geiri Ólafssyni. Hann sagði: ".... góður snípur" *Am buying industrial-strength soap*

Elitesse! Elitesse! Ég er svo svöng! Oh, banana!


miðvikudagur, febrúar 08, 2006
 

Kensaku Watanabe

In the voice of John Cleese: "Say no more. Sayyyyyyyyyyy noooooooooo moooooooooore"

 

Hot white chocolate

Ég fór í bíó í gær, eins og ég geri orðið vikulega. Ég man bara ekki eftir svona gósentíð í bíó eins og er búið að vera núna undanfarnar vikur. Blarraghgh! Memoirs of a Geisha var þriðjudagsmyndin (nískubíó í Regnboganum, 400 kr. á 6-sýningu) Og hún var æðisleg. Og konan sem leikur Hatsumomo (the naughty geisha), Gong Li, er óóóóóóóógeðsleeeeegaaaaaa falleg.
Ég var að tala um þetta við vinkonu mína í gær (hana Trixibelle, vixen bitch) og við vorum að pæla hvort að ég væri í alvörunni tvíkynhneigð eða hvort að þetta væri bara eitthvað tímabil (har, har) eða kannski bara minnmáttarkennd (af því að mér finnst allar aðrar konur vera svo ótrúlega fallegar/gáfaðar/heillandi/sjálfsöruggar/bla bla) Og ég bara veit það ekki. En ég held að það séu pottþétt einhverjar kenndir í kollinum. Eða neðar. Oh, lesbians.

föstudagur, febrúar 03, 2006
 
And now for a little Madge........ "Vogue, strike a pose...."

Annars vona ég bara að allir séu hressir á þessum ljómandi fína föstudegi. Ég er bara hress, fyrir utan það að ég er enn þá eftir mig eftir DRAUM VIKUNNAR. Mig dreymdi sem sagt mig, Marissu (Mischu Barton) úr O.C. og lesbískt kelerí. Ég vaknaði sveitt. Og svitnaði enn meira þegar fór að muna betur og betur eftir draumnum. Ég mæli engan veginn með kynlífsdraumi um þessa stelpu. Ég var eins og rúllupylsa. Blöðruselur. Flóðhestamamma. Reyndar, mér til huggunar, þá væru velflestir alveg ógeðslega óálitlegir við hliðina á henni. Cindy Crawford er eins og Barbapabbi í samanburði. Teenage wasteland.

Annars elska ég Cindy. The legs. The molly. The hair. The glory that was the 80's.

Ég er í vinnunni. Sem er staðsett niðri í bæ. Og svo kom inn gömul kona í miklu uppnámi. Eftir smástund kom í ljós að hún hafði verið rænd!!! Á gangi eftir Vesturgötunni, á leið í söngtíma með vinum sínum og það komu upp að henni 3 strákar og tóku af henni veskið og hlupu svo í burtu!! Við hringdum á lögregluna sem kom og sótti konuna og fór með hana til skýrslutöku. Ég vorkenndi henni mest af því að hún hafði hannað og saumað töskuna sína sjálf og var að sjálfsögðu eins og góðri konu sæmir með allt sitt helsta í töskunni. Ég vona að þessi strákafífl fái þetta borgað.

I do believe it was lucky star. Madge. Madge. Go, Madge!


fimmtudagur, febrúar 02, 2006
 

He thought them rodeos were all fuckups

Ég er búin að fara tvisvar í bíó á einni viku. Ég fór að sjá Brokeback Mountain. Og svo fór ég að sjá Brokeback Mountain. Ég ætla að segja sem minnst, en þetta er ein sú besta mynd sem ég hef nokkurn tímann séð, ef ekki bara sú besta. Og til að vitna í gamla manninn: "Ég vissi ekki að hommar hefðu svona miklar tilfinningar"
Annars er ég bara hress. Húsmóðir í vesturbænum í göngufjarlægð frá ísbúðinni. Pretty sweet.
Kennarinn minn er enn þá ógeðslega hot sex god. Garrrrr, og svo var ég spurð að því um daginn HVORT AÐ ÉG VÆRI EKKI ENN ÞÁ GENGIN ÚT!??!?!?! Og í þessum líka blússandi TÓN. Tón þeirra sem eiga börn og eru búnir að eiga maka frá því fyrir tvítugt. Ógeðslega andlega flatneskja!. Anyway, ég hef því ákveðið eftir þetta síðasta diss frá THE MARRIED MAFIA að svara eitthvað á þessa leið næst þegar ég er spurð að þessu:
"Nei, ég er svo kynköld/leiðinleg/geðveik/kröfuhörð í rúminu/ég er í alvörunni með typpi"
Somebody will be smacked!


Powered by Blogger