Killer Queen
fimmtudagur, mars 30, 2006

*I am making a hissing sound* *Hssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss*
You remind me of a girl that I once knew..... trallla laaa laaa. Usher. Black demi-god. CSI Warrick being ALL RULING GOD.
mánudagur, mars 27, 2006

Núna sit ég í vinnunni og blogga. Það er nú bara hin mesta furða að það sé einhver framleiðni á Íslandi, svona miðað við það að allir sem vinna skrifstofuvinnu eru annaðhvort að blogga eða að spila Bubbles. En ég hef alltaf vitað þetta; það eru strákarnir/kynlífsguðirnir hjá Ístak sem eru vinnandi, berir að ofan og gljáandi af svita sem koma einhverri hreyfingu á hlutina....... ahhhhhhhhh!!
Annars er ég komin með svo mikið að bólum af því að ég ét svo ógeðslega mikið af Elitesse! Hvað á ég að gera, reyna að hafa stjórn á mér?!?!? Elitesse er á tilboði í Bónus og ég bara missi það þegar ég fer að versla í matinn. Now I guess I'll never be a model...........
Svo er sumarið bara á leiðinni. Allavega hef ég vaknað kl.0800 á morgnana ALVEG AF SJÁLFSDÁÐUM af því að það er orðið svo bjart. Og svo er bara að finna sumargigg, svona til að reyna að borga VISA............. og kaupa meira Elitesse. Og kannski að fara til útlanda!!! Mig langar svo að fara til útlanda!!!! Núna undanfarið hefur mig mest langað til að fara til Króatíu eða Póllands eða Slóveníu eða bara Eystrasaltslandanna...... það er svo ódýrt að versla :p Og menningin, auðvitað!! :D
Trallla llaaa!!
föstudagur, mars 24, 2006

Mystic eyes
Lag dagsins: Mystic eyes með Them & Van Morrison
Ég er sem sagt búin að hanga heima hjá mér öll kvöld og liggja undir 2 sængum, flísteppi, með 2 kodda og 4 bangsa og horfa á THE SOPRANOS. Og ég eeeeeeeeeeeeeeeeeelska þessi þætti svo ógeðslega mikið!!!!! Og náttúrulega the Fat Tony. Ég elska hann mest.
En svo heyrði ég í vinkonu minni í gær, sem er að flytja til Noregs! Has history taught her nothing!?!??! Íslenska þjóðin varð til þegar Ingólfur Arnarson fékk ógeð og nennti ekki að hanga með Haraldi hárfagra og genginu hans og stakk öndvegissúlunum í vasann og sigldi yfir til Íslands. En það verður samt ábyggilega gaman hjá henni. Pats og Hákon prins.
laugardagur, mars 11, 2006

Erótík
Já, ég held að ég upplifi erótík á hverju einasta mánudagskvöldi þegar ég horfi á CSI. Í síðasta þætti þá var Warrick (SEX GOD THAT WALKS EARTH) í líkhúsinu með krukkaranum, sem benti á líkið og sagði í einni línu eitthvað á þessa leið: "I found abrasion in the pelvic area, lubrication on the penis and...... bla bla bla" Og ég bara missti það!!!!!! Alveg!!!! Ekki segja "lubrication" og "penis" og minnast á kynlífsáverka og hafa Warrick SEX GOD THAT WALKS EARTH í mynd á meðan!! Þetta komst ískyggilega nálægt "My kit is tight" línunni. Yowsa!
White man, I don't want to shag you no more. Bring me the sons of Africa.
fimmtudagur, mars 09, 2006

Byrjar aftur, þessi ólýsanlegi taktur....
Ég dró fram um helgina hina gömlu íslensku poppklassík, "Seif" með Páli Óskari. Þetta er vafalaust einn besti diskópoppdiskur í heimi. Yeah!!!!!! Í alvöru sko. Mozart, my foot!
1. próf annarinnar á morgun. Heimapróf, stendur yfir í 2 daga. Kreistur lifandi. Og ég er sem sagt úti í tölvuveri núna að prenta út glósur. Og bíða eftir Guiding Light. Ég kíkti í heimsókn í gær á fyrsta Melabúann (Melabúi 2 er enn þá að pakka niður og standa vonir til að hann flytji um helgina og eigi síðar!!) Melabúi 1 býr við þá skelfingu enn sem komið er að vera ekki með neitt sjónvarpstengi. Fyrri íbúi ákvað að hirða klónna af sjónvarpssnúrunni áður en að hann flutti, þannig að Melabúi 1 er með sjónvarpssnúru, en enga kló. Sem er náttúrulega alveg hrikalegt, því að þá getur Melabúi 1 ekki horft á Guiding! Eða OC! Omigod!! Anylou, ég sem sagt fór í mína fyrstu konunglegu heimsókn í gær á Melinn. Og þar sem að ekkert var sjónvarpstengið og klukkan nálgaðist 1700 óðfluga, ákváðum við að tala bara um Guiding Light í staðinn. Í mínum huga voru gullaldarár Guiding Light þegar ég var á aldrinum 12-15 ára. Kyle Sampson (núna orðin goðsögn...... nasavængjagoðsögn), Reva, Roxie, Billy, Josh, Sonny, Aunt Alexandra, Beth, Lujack, Mindy, HB, Ed Bauer, Flethcher Reade, Alan-Michael, Philip, Spaulding Enterprises vs. Lewis Oil....... OMIGOD, HVAÐ ÞAÐ VAR GAMAN!!!!!!!!!!
*Líður yfir mig af geðshræringu* *Er að gúffa í mig www.soapoperadigest.com* *Glááábbbb*
mánudagur, mars 06, 2006

Hurðin er lokuð vegna veðurs
Jaaa ssssooo. Ég var að koma úr tíma rétt áðan, í aðalbyggingu HÍ. Óveður úti, rok og rigning. Og þegar ég ætlaði að yfirgefa svæðið, með því að notast við, jú, hurð, þá var það ekki hægt. Af því að HURÐIN VAR LOKUÐ VEGNA VEÐURS! Madness. It's the ultimate madness.
En jæja, Óskarsverðlaunin eru fyrir löngu síðan alveg hætt að vera skemmtileg. Crash besta myndin. Og ég ætla nú bara að vera með blússandi sleggjudóma og vera hundóánægð með það, þrátt fyrir það að hafa ekki séð hana. En mig langar ekki að sjá hana. Not one bit. Eitthvað svo mikið.... ohhh. Tilfinningar. I bet there's a scene in it where somebody plays the piano with their eyes closed. Æji, og George Clooney besti aukaleikarinn. Enn og aftur, ég hef ekki séð Syriana, en mig langar að sjá hana. I hate Oscar, but I love Mr.Bafta.
En nú sit ég hér í Árnagarði og bíð eftir að veðrinu sloti. Sat einmitt áðan í tíma á eldgömlum, nötrandi trébekk. Og svo allt í einu fór trébekkurinn að nötra enn meira. Jarðskjálfti, 4,6 á richter-skala. *Skaaaaaaaaaaaaaaaaaabooioioiiiiiiiiiiiiinggggg*