Killer Queen
fimmtudagur, apríl 27, 2006
The Co-Worker
Ég fór á árshátíð á vinnustaðnum mínum á laugardaginn. Og eins og venjulega, þegar ég þarf/er að fara eitthvað fínt og út á meðal annars fólks í fínum fötum, þá geng ég í gegnum mikil og yfirþyrmandi geðhvörf þegar ég er að reyna að ákveða í hverju ég á að fara. Það tók bara 60 búningaskipti og 2 alvarlegar hugleiðingar um það að hringja bara og hætta við allt saman þar til að ég ákvað bara að drullast út úr húsi og mæta a.m.k. í matinn.
Blob-fasi 1 Langaði að sjálfsögðu að snarhætta við þegar ég var mætt á svæðið í fyrirpartýið. Allar stelpurnar sem ég vinn með höfðu farið í Gyllta köttinn/Karen Millen fyrr um daginn og keypt sér ýkt flotta og glam kjóla og voru ógeðslega sætar og fallegar. Og ég var í einhverri bómullarmúnderingu úr Vero Moda. Ugh.
Blob-fasi 2 Maturinn var fabulous. Lamba-fillet. Og af einhverjum ástæðum, þá kom alltaf aukadiskur á langborðið þar sem ég sat. Og ég, verandi ekki matgrönn frönsk kona, fékk mér því ábót ásamt 2 karlmönnum sem ég vinna með. Þarna sat ég því, í félagslegri lægð og lék lambafilletið eins og ljón leikur antilópu í Afríku. Uuuugh.
Blob-fasi 3 Oh, yes. The Co-Worker. Sem ég var ýkt búin að lofa sjálfri mér að hætta að vera pínu skotin í. Og ég er alveg að standa við það, honest. Eftir mat og eftirrétt, fóru allir að dansa. Og meira að segja ég, Cotton Wad, fór út á dansgólfið og gerði eins og genin mín segja mér að gera; TVISTAÐI (Hey, það er ekki mér að kenna að pabbi er sjálfsviðurkenndur TWIST CHAMPION OF LANDS!) og eftir smá twist og smá "white man's over-bite" og nokkra hallærislega hringdansa, sveif The Co-Worker yfir og snaraði mér í fang sitt (sem hefði verið ákaflega rómantískt og fallegt, læsi ég Daníellu Stál og klæddist hvítum marengsbrúðarkjólum um helgar alandi fáránlega von í hjarta) Og við stigum þarna dans, hann drukkinn/ég vandræðaleg og úr varð einhversskonar tangó. Ó, hvað ég kann ekki að dansa!! Taktleysið var algjört og óöryggið í mér gerði það að verkum að ég var eins og rjóður trédrumbur í fanginu á honum; ógeðslega stíf af því að:
a) Ég vildi ekki detta!
b) Lyktin af honum var svo ógeðslega góð að ég vildi ekki "give in to the urge" að sleikja á honum hálsinn
c) Kermit vs. Miss Piggy faktor (He is small, very small. And I am not.)
Þannig að þetta var allt saman bara mjög hræðilegt!!!!!!!!!!
Og svo kom ég heim. Lagðist í rúmið og bylti mér og bylti. Fékk bömmerhausverk og hjartslátt. Og bara NEIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII!!!!!!
Ég byrja sem betur fer ekki að vinna fyrr en eftir miðjan maí. Ég hef því rúman hálfan mánuð til að enduruppgötva sjálfa mig, missa 25 kíló, kaupa mér eitthvað annað en bómullarboli úr Vero Moda og finnst Sjálfstraustsúða í Hókus Pókus og BARA GLEYMA ÞVÍ HVAÐ ÉG ER ASNALEG!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
BONSAI
"Wax on, wax off" Í gær eignaðist ég mitt fyrsta Bonsai tré. Og nú þegar elska ég þetta tré svo mikið!! Ég lá andvaka í allt gærkvöld og starði á það, heilluð. Og núna er ég á netinu að lesa upplýsingasíður um umhirðu og samskipti við Bonsai tré.
"Beginning Bonsai: a beginner's guide"
"The Beauty of Bonsai"
"Your Bonsai and You"
"How to treat your Bonsai"
"The Best of Bonsai"
En svo rakst ég á einverja hræðilega síðu sem sagði að lítil Bonsai tré sem væru keypt í mollum og blómabúðum og annars staðar en í Japan væru MALLSAI!!!!! Og ég bara næstum því táraðist!! Bonsai tréð mitt er sko ekki MALLSAI!! Bonsai tréð mitt heitir PAT MORITA og ég ELSKA það mjög mikið!
En ég er farin að vökva PAT MORITA. Og skoða greinarnar.
föstudagur, apríl 21, 2006
But I know somehow you'll find me
Jahérnahér. Ég fór í Bónus áðan og keypti inn fyrir helgina; 2 bakka af tómötum, 2 l Diet Coke, 1 l TaB, 6 Curly Wurly og 1 pk. af Bubblicious tyggjói. So I'm gooooood to gooooooooooo.....
Annars er tjúll að gera. Ég er að fara í heimapróf á mán. og á að skila ritgerð á mánudagskvöldið. Ég reyndar hefði ekkert á móti því að sofa hjá kennaranum mínum í staðinn fyrir að skila inn ritgerðinni. Because he's kind of hot :P
Annars fannst mér frekar fyndið þegar ég var hjá ömmu fyrir norðan og við vorum að horfa saman á Guiding Light. Og henni finnst Alan-Michael "alveg afskaplega fallegur ungur maður" og ég sagði: "Hmmmm, já? Mér finnst nú pabbi hans vera myndarlegri.........meira svona... já..... öhhhh...... myndarlegri" (og þá meinti ég sko GRRRRR, COME HITHER, SEXY DADDY!!) Þannig að ÖMMU MINNI finnst strákar á mínum aldri vera fallegir..... OG MÉR finnst GAMLIR KALLAR Á HENNAR ALDRI/ALDRI BARNA HENNAR VERA MEGAHOT HOT HOT!! :O Yes, people have suggested therapy to me.........
Don't cry my child
Ég er enn þá í kuðung á gólfinu að hlusta á Marianne Faithfull. Hún er faaaaaaaaaaaaaaaaaaabulous. "Before the Poison" er nýjasti, og hann er æðislegur! Og svo er líka "Kissin' time" frábær, hann er svona meira Kylie-techno. And as you kids now I do loooooooooooooooooooooove my Kylie.
I have no time for hate or love..... hey child, you're no child of mine.
miðvikudagur, apríl 19, 2006
Ég sit/ligg í hnút á gólfinu og hlusta á Marianne Faithfull. "The Mystery of Love"
"When you're not by my side
the world's in two, and I'm a fool
When you're not in my sight
then everything, just fades from view.
The mystery of love belongs to you
the myster of love belongs to you
Tell me, have you changed your mind?
Am I a fool, because of you?
Tell me, do we still have time?
to make this wrong some how be right?
The mystery of love belongs to you
the mystery of love belongs to you
Show me sweetness, show me summer skies
show me how to make this wrong seem right
show me laughter in your pale blue eyes
tell me, tell me, have you changed your mind
Ó já, ég elska Marianne Faithfull. Hún er ábyggilega ein svalasta kona á jörð. Og líka, að vera ung og falleg mitt í THE FABULOUS SWINGING 60'S LONDON og djamma með Rollling Stones og sofa hjá Mick Jagger og vera bara óendanlega svööööööööööööööööl og falleg og æðisleg.
Pumpkins
Já, ég ligg hérna í kuðung á gólfinu og reyni að blogga. Og horfi á Guiding Light með öðru auganum. Ég verð að fara að fá mér nýja netsnúru. Snúran sem ég er með er svona 2 m og liggur hálf undir sjónvarpinu. Þetta er orðið dáldið mikið CROUCHING STUDENT, HIDDEN RICHARD GERE LOVER.
Páskarnir voru æðislegir. Ég fór vestur á Ísafjörð og lék þar lausum hala með fólkinu mínu. Og sá Helga Björns. Ég og systir mín stóðum í miðjum fólksskaranum og potuðum í hvora aðra og börðumst um: "Hvar er hann?!?!?!? Sérð þú hann?!?!??! Ohhhh. Hvar er Helgi?!?!??! Ohmigod!!! Þarna er hann!! Ohmhygd!!!" Systir mín er by the way 33ja ára. Og svo þegar við vorum að fara út af tónleikunum mættum við Helga Björns fyrir utan, þar sem að hann var að reykja og drekka bjór, eftir að hafa troðið upp með Mugison. Og ég og systir mín ætluðum að missa það!!!!!!! Omæææææægod!! Sást'ann?!?!?!?!? Sást'ann?!?!?!? Ohhhh!!!
Og ég keypti mér sólgleraugu í dag. á 200 kr. í Tiger. Ég las í slúðurblaði að stór, hvít gleraugu yrðu THE MUST HAVE FASHION ITEM í sumar....... Og ég á núna hvít, risastór tískugleraugu!! I'm so hip and happening. Vogue! Strike a pose!!
miðvikudagur, apríl 05, 2006

My new lesbian love. Ignore old, ugly guy. Þetta er hún Louise Lombard, sem vakti mikla lukku hjá mér og mömmu þegar ég var lítið barn og við horfðum alltaf saman á THE HOUSE OF ELLIOT, sem fjallaði um tvær systur sem ráku saumastofu á millistríðsárunum í London. Mjög skemmtilegt. And yes, I am aware of the fact that I am a nerd.
Og núna leikur hún Sofiu Curtis í CSI. Ég held reyndar að hún sé bara í gestahlutverki í nokkrum þáttum. But I love her. What am I going to do???
Og að öðru, og mun meira ógeðslegu. Ég hef nú hingað til ekki haft það fyrir venju að setja hlekki inn á bloggið mitt, en þar sem þetta fékkst Í KENNSLUSTUND Í HÍ í vikunni, þá stóðst ég ekki mátið. Og ég horfði á þetta með kennaranum mínum. Bara við tvær, ég og kennarinn. Og eftir að hann sagði: "Sometimes I see some young guys and I think BOY, WOULD I LOVE TO FUCK THAT ASS......." þá gafst minn góði kennari upp og slökkti. Skiljanlega!!!! Og nú segi ég bara eins og franskur þjónn: "Américans"
http://media.putfile.com/Body-enhancement-gone-mad#139022440