
Do you really think I'm going to schlepp all the way over there?
Yeah, I wanna dance with somebody.
Ég skrapp í sveitasæluna á Ísafjörð um síðustu helgi. Það var æði æði æði. Og mér fannst ógeðslega glatað að koma heim. Þannig að ég, gott fólk, er að hugsa um að flytja út land.
En hvaða útnárarassgat á ég að velja?
1. Vestmannaeyjar
2. Ísafjörður
3. Snæfellsnes
Akureyri kemur varla til greina, þó svo að fjölskyldan sé að flytja þangað. Akureyringar eiga bara að fá sinn eigin fána og get on with it. Helst að saxa eyrina af landinu og stjaka þeim í átt til Noregs. Ok, ok. Ég skal reyna að sína bræðrum mínum og systrum í norðri þolinmæði. En þeir eru bara svo hræðilega merkilegir með sig!! Og svo kunnaaaa þeir ekkiiii að djókaaaa.
Mér var boðið í Bláa lónið í morgun. Viðkomandi bauðst til að taka sér frí í vinnunni svo að við gætum farið saman tvö. Viðkomandi er með dauða framtönn með gullrönd og ógeðslega mikið af nefhári. Viðkomandi settist á móti mér og allan tímann sem hann ræddi við mig, var hann með aðra hendina í klofinu á sér, you know..... touching something. SEM ER BARA MESTI VIÐBJÓÐUR SEM ÉG VEIT!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Needless to say, I said NO. I shall not go lagooning with you.
Mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm. En svo er Jason Newsted að gera mikla lukku hjá mér seint á síðkvöldum. I shall not go into detail, but he is hot. So hot hot hot hot to trot. (But let's just say that my hand deserves an OBE for an all-round fabulousness, grace, performance and character) En ojjjjjjjjjj, ég ætla að hætta að tala um hendina á mér!!
Brúðkaup á morgun. Þetta verður víst eitthvað mega mega glam glam glam. Ég er samt feginn að BRÚÐKAUP ALDARINNAR var á undan og var þar með fyrsta brúðkaup sumarsins. Ohhh. Ég á bara eftir að sitja aftast, klappa með fingurgómunum í neðri hluta lófans og segja með stífum munni: "Charmed, I'm sure"

"Why oh why do we pay taxes??"
Hvílík geigvænleg mistök að fara fram úr í morgun. Þegar þetta er ritað, kl.10:26 f.h. þá er dagurinn strax orðinn einn sá glataðasti sem ég hef upplifað lengi. Ohhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh!!! Sucky sucky sucky hell hell hell sucky sucky long time.
Öhhhhhhhh! En að jákvæðari hlutum. Sem eru þeir að ég er með ískalt Diet Coke á borðinu hjá mér og pizzuafgang frá því í gær. Og ég var að klára að borða 4 tómata. Og ég fékk bitchin' fantastic fullnægingu í gær. Svona sem skilur mann eftir með doða frá miðjum lærum og niður og með brjálaðan hjartslátt og bara mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm. Og svo fór ég fram í eldhús, fékk mér TaB og kalda pizzu. Oh, yeah. Ég segi nú bara eins og George: "I got a sandwich and a quickie!"
En jæja, lesbo night. Sexý, sexý Shane. Sexý, sexý lesbo sex. Sexý, sexý.

Oh, great sexual glow of Jason Newsted. Oh, if were I only a teenage girl in 1985.
Hann er svo hot. Hot hot heat. Annars sit ég í vinnunni og hlusta á Pandóru og bora í nefið. Annars er ég að berjast við alveg ógeðslega klígjutilfinningu. Ég var nefnilega borða banana og ég fékk svona bananahár upp í mig og svo dinglaði það út yfir neðri vörina á mér. Hrollvekjandi tilfinning.
Er Metallica ekki besta rokkband í heimi? Gamla, góða Metallica? (James Hetfield ginger days o.s.frv.)
Anylouwho. Ég var að tala við vinkonu mína sem er HEAVY SKOTIN í manni sem um daginn kallaði sjálfan sig OFURTILLAN. Sem að mér finnst náttúrulega bara viðbjóður. Massive penis ego. Af hverju segja karlmenn aldrei: Oh, typpið á mér er svo lítið. Það er æði. Ég elska það" ??
Og talandi um annan viðbjóð og líka af kynferðislegum toga. Ég var að horfa á L word um daginn (holy tv hour) og Jenny var að koma úr sturtu og settist á klósettið og svo kom kærstan hennar úr sturtunni beint á eftir henni (ógeðslega sæta dj kærstan hennar). Anylouwho, Jenny sat á klóinu og kærstan kom svo.... og settist ofan á hana á klósettinu... og fór eitthvað að kela við hana, með hendina.... ojjjj....like, almost in the toilet! SEM ER BARA ÓGEÐ AF ÞVÍ AÐ JENNY VAR Á KLÓINU!!!! LIKE, RELEASING USED FOOD PRODUCTS, BE THEM LIQUID OR OTHER! Ógeð!! Þetta var sko í fyrsta skipti sem mér blöskraði eitthvað í þessum þáttum (ég er svo mikill hard ass nagli, sko) og bara ojjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj!!!!!! Núna finnst mér þær bara vera ógeð ógeð gerandiþaðáklóinu kærustupar. Ég er samt geðveikur hard ass. Nagli. One tough bitch. SEM GERI EKKI NEITT KYNFERÐISLEGT Á KLÓSETTI. Eða í rúmi sem er nýbúið að skipta um á. That's positively crude and bad manners!

Ég er enn þá alveg gjörsamlega uppgefin eftir helgina. Ég held að ég hafi óvart borðað steypu eða eitthvað, ég get engan veginn rifið mig fram úr á morgnana og er svoleiðis að drepast úr þreytu í vinnunni. I think it's time for a holiday. Og svo var ég að prenta út próftöfluna. Fyrir sumarprófin. Þreytan minnkar nú ekki mikið við þá notalegu tilhugsun. Holiday!
Vaknaði í fyrrinótt við eitthvert dularfullt hljóð inni í herberginu mínu. Lak fram úr, svefngrútin og svona rétt svo með meðvitund. Sá feiknarstóran poll á gólfinu, sem var byrjaður að renna fram á gólfið og ég rétt svo náði að ranka við mér og grípa nokkur handklæði og bjarga bunka af skólabókum. Skreið svo út í hornið og komst að því að ofninn lak. Ekkert gríðarlega mikið, en alveg nóg samt. Þetta var samt sem betur fer hreint vatn, ekki eitthvað ógeðslegt eldgamalt miðstöðvarofnavatn. Setti vaskafat í hornið, þurrkaði mér og skreið aftur í rúmið. En þá tók nú ekki betra við. "Chinese water torture" hefur nú öðlast nýja merkingu í mínum huga. Dropar sem leka í vaskafat með 3,45 sek. millibili er SKO ALVEG TIL AÐ ÆRA ÓSTÖÐUGAN! Ég var alltaf alveg að sofna en þá féll dropi í fatið og ég rankaði aftur við mér, á 3.45 sek. fresti (Já, í andvöku minni tók ég tímann með skeiðklukku!!) En sem betur fer vaknaði ég við dyrabjölluna FYRIR DÖGUN Í MORGUN og þá var mættur maður með skiptilykil til að gera við þetta fyrir mig. Einhver pakkning farin.... bla bla bla. Eftir brúðkaup aldarinnar, óhóflega rjómaneyslu, 2 andvökunætur í bland við Chinese water torture og almenn óþægindi, þá er ég bara orðin drulluþreytt, maður!!
Mánuður í þjóðhátíð í Eyjum. Ég fæ alltaf smá tilhlökkunarfiðring í magann. Árni Johnsen.
Ætti ég að skrölta í Bónus eftir vinnu og kaupa viðbjóðslegt magn af nammi til að háma í mig yfir Melrose Place??
Rjómi og tilfinningar
Indeed, my little children of the revolution. Ég er alveg gjörsamlega uppgefin eftir nýafstaðna helgi. Tilfinningalega, andlega, líkamlega alveg algjörlega dauðuppgefin. Það er ekkert smá erfitt að gifta vini sína. Ég grenjaði og grenjaði og hámaði í mig köku. Sat svo áfram og snökti í rjómann og át og át og át og át enn þá meira. Í gærkvöldi var ég líka ekkert smá slöpp, troðfull af rjóma og púðursykri. Þambaði smá vatn til að hressa kerfið við, en þá var bara eins og rjóminn margfaldaðist að rúmmáli og flæddi smám saman yfir í æðakerfið og upp í heila og alveg niður í tær. Ég er ekki frá því að ÉG sé bara í smá spennufalli. Ég get ekki ímyndað mér hvernig brúðunum líður. Alveg væri ég hreinlega dauð úr ást.
Annars þá kom rjóminn sér vel, af því að ég borðaði svo ógeðslega mikið af honum að mojoið mitt steindrapst og hefur ekki látið í sér heyra síðan á laugardaginn.
Hvar í ósköpunum er SDP dekkjaverkstæðið?? I need to go there after work. Is it under the sea?