Killer Queen
Ohhh, ég er komin með nýjan metnað. Ég ætla að verða svona eins og Nigella. Svona Italian-style domestic goddess! Ohhh, þetta vaknaði allt síðastliðinn sunnudag þegar ég var að elda sunnudagasteikina. Það var purusteik og mágur minn, kokkurinn, var í heita pottinum að horfa á formúluna. Hann kallaði í mig og bað mig um að krydda og undirbúa svínasteikina fyrir seinni umferð í ofninum. Ég setti á mig svuntu og náði í krydd. Byrjaði á því að strjúka fingrunum eftir þykku fitulaginu og leita eftir góðum stöðum til að stinga kjötið í gegn til að geta ýtt niður hvítum og svörtum pipar hér og þar. Svo tók ég salt og nuddaði því inn í fituna og það var dásamleg tilfinning!! Það er alveg hreint unaðslegt að strúka fingrunum eftir nýrri purusteik sem er á leið í ofninn. Svo lýkur þessari erótísku stund með svínakjötinu á því að maður tekur lárviðarlauf og stingur inn á milli inn í fituna. Mmmmmmmmmmmm! I love you, Sunday pork :)

Hot highwaylove
Jæja, þá er komið að hinni vikulegu játningu. Ég er í vinnunni að hlusta á Bryan Ferry & Roxy Music. Og er að fara í próf á eftir. Kemst ég einhverntímann yfir þetta ég-verð-að-æla-úr-stressi-fyrir-próf?? Ég kannski bara æli út úr mér heilanum einhvern tímann og þarf þá aldrei aftur að taka próf.
Og ég ákvað að setja bara inn aðra mynd af Daniel Sunjata. Hann er bara svo ógeðslega hot. He's just a love machine.... da ra ra ra.
Ég veit ekki hvað er meira að frétta. Ég flyt eftir 3 vikur. Omg! Finalmente. Loksins get ég farið á djammið og dregið heim með mér karlmenn og brúkað þá á mjög háværan og lostafullan hátt. Um það snúast þessir íbúðaflutningar mínir. Hah! Nei, aðalatriðið er náttúrulega að geta labbað um á naríunum og borðað tómata.
Ég segi nú draumfarir mínar ekki sléttar í líðandi viku. Mig dreymdi raðmorðingja og nasista og hvali og umræður um Alþýðubandalagið. Hvað varðar hvalina, þá er ég mjög klofin í þessu máli. Ég elska hvali en ég þoli ekki Sea Shepherd og Rainbow Warrior og Greenpeace. Hmmmmm. Geðklofi. Geðhvalur.
Ohmigod, yeah!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ohhhhh yeah baby!Had a roll in the hey hey hey last night. Öll gleði í boði Daniel Sunjata (see photo above). Hann er svo ógeðslega hot að það er bara....... svima- og flensuvaldandi. (Og fyrir þá sem ekki hafa séð þættina Rescue Me á Sirkus, þá mæli ég bara eindregið með þeim. Sérstaklega út af eftirfarandi atriðum:
A) Daniel Sunjata leikur ótrúlega hot sexy babe fola í þessum þáttum.
B) Til að sjá Dennis Leary komast yfir alveg ótrúlega margar konur.
B) Hlæja...... GEÐVEIKT ÓGEÐSLEGA MIKIÐ!!!!!!!!!!!!!!!!!!
" I'm an American. I like to suck on big tits. -So, what am I? A terrorist because I like small tits??
Þannig að ég er ýkt að pæla....... kannski er Daniel Sunjata THE NEW HOT THING ON MY MAN LIST. Kannski er hann meira hot en Liam Neeson var í gamla daga. Maybe, ladies and gentlemen, I've found a new King Ding a Ling.
Don't stop the dance!Fréttatikynning: Ég tek til baka allt það sem ég hef áður sagt hér um Hung the Son. Ég er búin að finna einn hlut sem er jafnvel stærri en ........ well, his schlong. Og það er egóið hans. Ég kom í vinnuna áðan og var búin að vera hérna í hálftíma þegar ég komst að því að hann var búin að tala bara um sjálfan sig af miklum móð í rúmar 20 mín. Ohmigod. Easy does it.So, am now a totally lust-free agent. Nema fyrir utan þetta með Bubba og bróðir hans. I don't want to lose you tonight. You're the only thing that matters.

How a t-shirt can save your faith
Jæja, mánudagur sánudagur. Október. Ottubre. Komst að því rétt í þessu að fílefldir karlmenn fíla ekki að láta kitla sig og segja við sig: "That one sure has a pretty mouth" á meðan samstarfsmaður spilar lagið úr Deliverance á gítar. En hey, alltaf er maður nú að læra.
Það er bíókvöld annað kvöld á Stúdentakjallaranum. Ég er að pæla í að kíkja. Það á að sína Rolling Stones myndina "Gimme Shelter" og franska mynd frá því 1964 sem heitir The Umbrellas of Cherbourg. Ég sá einu sinni heimildarmynd um bíófíkla í New York. 3 karlmenn komnir yfir þrítugt sem gerðu EKKERT nema að fara í bíó, ná í blaðið, skoða bíólistana, skipuleggja sýningartíma þannig að þeir gætu farið á mili bíóhúsa og séð sem flestar myndir á hverjum degi. Og þeir voru náttúrulega ekki í neinni vinnu, heldur fengu bætur frá ríkinu og bjuggu í ponsulitlum íbúðum og gerðu ekki neitt nema að fara í bíó. Og einn þeirra sagði frá því að hann hefði séð bíómyndina The Umbrellas of Cherbourg og gengið svo einn heim eftir myndina og grátið í rigningunni. Hann grét alla leiðina heim. Og hélt svo áfram að gráta þegar hann kom heim. Og hvað hugsa ég: "This is gotta see!"
Annars er nú lítið að frétta. Mikið að ske. Ble ble ble. Dreymdi alveg svakalegan kynlífsdraum um daginn. Rough, tough and tumble. Very hot and heavy. Með Bubba Morthens. Ég er enn þá í sjokki. Bæði yfir því hvað þetta var sexý og hot og líka yfir því að þetta hafi verið Bubbinn. En reyndar, þó að hann sé stundum dáldið eins og Mr. Potatoe Head, þá er hann rosa boddý. Miðað við aldur, krakkar. Í alvöru. Like a 25-year-old pool boy extra from Melrose.