
"You're so delicious. Da da ra da da. You're so delicious. Da ra da. Goddamn fine. You're so delicious"
Úff.

Játning dagsins.
Ég er að minnka lyfin sem ég er búin að taka í 1 1/2 ár. Lyf sem, þegar maður tekur þau, hafa þær aukaverkanir að öll kynferðisleg löngun fer út um veður og vind. Og lyf, sem þar af leiðandi, þegar maður hættir að taka þau eða tekur minni skammta, gjörsamlega bombardera mann með girnd. Og þannig er þetta búið að vera. Ég bara get ekk látið sjálfa mig í friði. Og hunk d'jour er breski eðalleikarinn James Nesbitt, sem er svo ógeðslega fucking hot sem Murphy í Murphy's Law lögguþáttunum. Og svo að ég vitni nú í alveg ógeðslega ógeðslegt lag með blöðrupoppbandinu Maroon 5: "Keep her coming every night" And my dear readers, he does. He does it oh so well.
Ps. Þessi færsla var alfarið sett inn til að gleðja minn kæra vinn sem býr nú í Nýja-Sjálandi. Hann var einmitt svo skemmtilegur og ljúfur við mig um daginn, þegar hann sagði: "Ohh, mér finnst bloggið þitt svo æðislegt" Og ég var alveg ótrúlega ánægð og upp með mér, alveg þangað til að hann sagði: "Það er svo gott að vita að það er einhver annar þarna úti sem stundar ENN ÞÁ MINNA KYNLÍF en ég geri" Thank you, sweetie.