Killer Queen
mánudagur, mars 26, 2007
fimmtudagur, mars 22, 2007

Oh, to be in Greenland and living in a snowhouse.
Ég fór áðan að skoða íbúð. Vonir mínar voru e.t.v. of miklar, sbr. myndin hér til vinstri. En já, ég er sem sagt að leita mér að svona skjannahvítri, grískri íbúð með sundlaug í garðinum. Íbúðin sem ég fór svo að skoða var, tja..... ekki grísk. Hallandi gólf, lágt til lofts, enginn sturta (I bathe standing up!) og engin eldavél/ofn. (I kind of like eating, so cooking facilities would be nice.)
Ég sit því hér KRAMIN Á SÁLINNI og drekk kók og er í sjokkþerapíu hjá Simon & Garfunkel.
Hmmm. Kannski ég flytji bara til Grænlands og búi í snjóhúsi þar. Eða búi undir skrifborðinu mínu í vinnunni.
Oh god, I hate adulthood!!!
Ég flyt bara til Grikklands. Labba um á ströndinni og sit á hvítu svölunum mínum og borða ólífur og verð THIN AND FABULOUS! With sun-kissed skin and dark, wavy hair.
And I shall be called.... Electra!
föstudagur, mars 16, 2007

Jethro Tull
Eitt sinn var ég í skóla. Og ég lærði sögu. Hjá kennara sem var/er enn þá ÓGEÐSLEGA SEXÝ! Og eina önnina vorum við að lesa um iðnbyltinguna. Og hann minntist á mann sem hét Jethro Tull og var Breti, landbúnaðarfræðingur og fann upp einhvern.... bor.
Og þá minntist kynlífsguðinn á það að þegar hann var ungur að hann hefði hlustað mikið á hljómsveit sem hét einmitt Jethro Tull. Og ég náttúrulega fór strax og kannaði málið (you know, to get closer to my glove of love.) Ég hlustaði á 1 lag og ákvað: Mér finnst Jethro Tull vera alveg ÖMURLEG hljómsveit... rokkband? Þverflauta? Neiiiiiiii!
En svo um daginn var ég að keyra um bæinn og pikka upp stráka and generally just sluttin' around town. Kom svo ekki lag í útvarpinu með Jethro Tull..... og það var alveg meiriháttar! Awesome, I say! Og svo kláraðist lagið og plötusnúðurinn sagði: "Þetta var Jethro Tull með hið frábæra lag Teacher....." Og ég auðvitað ÆLDI ÚR HLÁTRI og ákvað að éta ofan í mig orðin.
Zæmi, you god of sex. You taught me how to love. And listen to Jethro Tull.
Oh, to be in the 70's, having sex and smoking pot.
Fékk póst frá Nýja-Sjálandi. Þar var ég sterklega vöruð við því að að sænga hjá rauðhærðu fólki. Það er víst hræðilegt. Eru einhverjir rauðhærðir þarna úti sem vilja verja sig?
I myself have been known to have fancied gingers in my time. En nú þarf ég kannski að fara endurskoða afstöðu mína. Apparantly, they stink in bed. Whereas I am fabulous in bed :)
En ég ætla að bíða með pistilinn um rauðhært fólk. Er enn þá í sjokki. Ég sá nefnilega fyrstu ástina mína (og fyrstu rauðhærðu ástina mína) í viðtali á Omega um daginn. Datt aldrei í hug að Omega gæti gefið manni svona á kjaftinn á sakleysislegu sunnudagskvöldi. Must stop channel surfing.
miðvikudagur, mars 07, 2007

Can you hear the drums, Fernando?
Ég er í vinnunni, í alveg blússandi stuði að hlusta á ABBA.
Hef nú ekki mikið að segja.
Ég var að labba heim úr vinnunni í gær. Hitti mann á Laugaveginum, sem stoppaði, gaf mér súkkulaði og strauk á mér hárið. Sem hefði verið mjög rómó, tryði ég á svoleiðis sullumbull og húmbúkk. Og ef að ég hefði kannski smá áhuga á viðkomandi manni.
En það er alltaf gaman að fá súkkulaði.
Oh, god, darling. Why do all your clothes look like little murderers?