<$BlogRSDURL$>
Killer Queen
fimmtudagur, maí 10, 2007
 


Cat people

Jibbí! Ég fann lagið með David Bowie úr Cat People í vinnutölvunni (yeah, I'm doing my job allright)
Minnir mig á 8 tíma keyrslur vestur á Ísafjörð. Ég og mágur minn tökum alltaf smá svona músíkesssion á leiðinni. Byrjað á smá klassík (Elgar, Marin Marais, yar yar yar) og svo skipt yfir í David Bowie. Holiday!

Grag shag rug

Katzen könnes nicht fliegen. Ég er að læra þýsku. Ein setning á dag. Ætla að flytja til Þýskalands og giftast Sebastion Koch (aðalhlutverkið í Das Leben der Anderen) Gorgeous, filthy, gorgeous!!!!!!!!!

 



You can't hurry love, love


Oh, ég er öll í flækju. Og ég þarf að fá mér augnkrem í afmælisgjöf, ég er komin með ógeðslega mikið af línum í kringum augun. No crow's feet, but the whole bloody bird!!
Tóti guð á afmæli í dag. Hann er ábyggilega einhvers staðar ber að ofan að fagna deginum. Gahh!

miðvikudagur, maí 02, 2007
 


Sexý Saxi læknir

Ég fór til tannlæknis áðan. Var búin að vera með tannpínu í viku. Vaknaði svo í nótt og leið eins og stóðhestur hefði sparkaði í kjálkann á mér. Sá fram á það eitt að fara til tannlæknis eftir.... tjah, nokkurra ára hlé. Var eðlilega ógeðslega stressuð og að fríka út. Ta-ra-dah! Tók á móti mér þessi líka grjótmyndarlegi, ungi tannlæknir. Var rosalega fegin að hafa ekki fengið mér hefndar-hvítlauk áður en ég mætti. Fór svo að spá í því þegar ég lá í stólnum: Er hann myndarlegur? Eða finnst mér það bara af því að ég er deyfð allan hringinn og er að horfa á hann á hvolfi? Var síðan orðin svo húrrandi vitlaus af deyfingunni að ég lá bara alveg kyrr og horfði á hann meðan hann reif úr mér endajaxl. Endemis ógeðslegt reyndar þegar hann tók lítil skæri og fór að tína upp restina af rótunum. Þá var nú öll rómantíkin farin úr þessu stutta sambandi. En við eigum annað stefnumót í sumar. Oooh, sexy dentist.


Powered by Blogger