<$BlogRSDURL$>
Killer Queen
miðvikudagur, júlí 25, 2007
 


Uuuuuhmigod!

Underwear on fire. Underwear on fire. Sexy roll of ginger.

miðvikudagur, júlí 18, 2007
 


The Man who Loved Cat Dancing

Komst að 2 mjög skemmtilegum hlutum í gær:

I. www.ilovetab.com
Þar getur maður skrifað undir undirskriftarlista til að bjarga Tab frá útrýmingu.
Og spjallað við aðra Tab-aðdáendur víðs vegar úr heiminum.

II. The Burt Reynolds Museum
Ég veit ekki alveg nákvæmlega hvar það er...... en by jove, I'm a gonna go!

Annars langar mig bara til þess að liggja í þunglyndi heima hjá mér og spæna í mig nammi. Renna saman við sófann og mara þar í marga daga með Fawlty Towers í tækinu og gos í æð. Bleurgh.

Lítið að frétta. La la la. Féll í djúpan súkkulaðipytt og er núna með alveg viðurstyggilegar bólur. Toblerone. Light of my life.

Ein, zwei, drei, polizei.

fimmtudagur, júlí 05, 2007
 


Ohhhh, holy elephant love


Hversu veikur er maður orðin þegar maður er farin að sjá fallega róna á götum Reykjavíkur????? Mjög veikur! (En hey, hvort segir það meira um mig eða úrval sætra stráka á höfuðstaðnum??) Anylouwho, á götum Reykjavíkur sé ég oft á vafri ungan mann, riddara götunnar, útigangsmann. Róna? Í slitnum gallabuxum og hermannajakka. Ljóshærður með blá augu og ljós skegg. Með tattú. Ógeðslega fallegur. Og ég bara síg niður í götuna þegar ég sé hann og dey úr ást. Ég geri mér auðvitað grein fyrir því að kjallararotta eins og ég og útigangsmaður eins og hann eigum litla möguleika á því að ná saman. Ég ræddi þetta við strákana í vinnunni og þeir komu með 2 tillögur, sem þið megið svo endilega kjósa um:

A. Elska hann, draga hann upp úr götunni. Skjóta yfir hann skjólshúsi og frelsa hann frá fíkninni. Láta ástina sigra allt.

B. Hrynja í það með honum og enda á götunni.

Sweet mother of god. Choices, choices.

En annars er allt ágætt að frétta. Eftir Tab-frægð mína hafa farið í gegnum huga minn mjög skelfilegar hugsanir um stærðina á rassinum á mér. Ég hef legið andvaka og hugsað og hugsað. About this entitiy, this being, that I call my ass. My ass.

þriðjudagur, júlí 03, 2007
 


George, do you ever yearn?

Tab-stjarnan mælir:
Oh, er eitthvað hægt að vera ógeðslega meira sexý en Edward Norton?? Öh, nei!
Hann ber alla ábyrgð á mojo-inu mínu þessa dagana.

(Oh, sjokk. Ég sá klámmyndina 300 um daginn. Hún er sexý. Hún er heit. Hún er stone-cold fox. Hún er reyndar líka mjög góð mynd. Og Gerard Butler. Oh, ég get ekki talað um hann. Ég get ekki hugsað um hann. Mig langar bara að leggjast í gólfið og deyyyyyyyyyyyjjjjjjjjjjjjja. Deyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjja. Yearning, burning!


Powered by Blogger