Killer Queen
föstudagur, nóvember 30, 2007

Uppgötvanir
Af hverju var ég ekki búin að fatta þetta fyrr?? Komst að því áðan að það eru kjöraðstæður hérna í vinnunni til þess að gera það sem ég geri iðulega í leyni heima hjá mér. Komst að því að í speglinum fyrir framan starfsmannaklósettin er framúrskarandi aðstaða til þess að kreista fílapensla. Stór spegill, flúorljós og loftkuldi (eykur kreistuúthald.)Ég stökk sem sagt áðan á klóið og var góðar 10 mín. í speglinum að hreinsa upp á mér nefið. Þetta er ógeðslegasta áhugamál í heimi. But by jove, I can't stop. Og núna líður mér ótrúlega vel. Öll svo hrein og bein.
Over and out, Roger.
þriðjudagur, nóvember 27, 2007

Staring into the eyes of a fat cat
Ég get sett mig alveg ískyggilega mikið í spor þessa kattar. I was once ginger. I love sofa. I dig it.
fimmtudagur, nóvember 22, 2007

Ps. Fór í bíltúr í dag í Audi A4. Mmmmmmmmmmmmmmmm. Og ég fékk konfektmola. Geggjað. Leið reyndar dáldið kjánalega af því að ég var í eskimóaúlpunni minni, sem er rúmir 8m2 og dáldið fyrirferðarmikil. Mér fannst eins og ég ætti að vera í rauðum, flegnum kjól, ógeðslega mikið máluð og með vindil, svona Bond-girl-Xania-Onatopp-style :)
But it was a smoooothe ride.

Only nerds remember
Í dag er 44 ára ártíð JFK. Auðvitað mundi ég eftir því. Sexy Jack. Segi sko bara eins og Jude Law í "Alfie" (þegar hann er að sofa hjá gellunni með gíraffalappirnar í límósínunni, woman-on-top-style): "This was JFK's favourite position..... He was such a great leader"
Fékk reyndar ógeðslegt sjokk þegar ég var að gúggla myndir af JFK í morgun til að setja upp á töflu í vinnunni. Kom upp alveg mökkur af myndum af honum á krufningarborðinu, með höfuðleðrið flett af og allur í blóði. Ég ældi næstum því á lyklaborðið.
Anylouwho. Come here so I may brain thee.
mánudagur, nóvember 19, 2007

A day in the life of a cookie monster
Mmmm. Í morgun var lífi mínu handahófskennt bjargað af ægifögrum manni frá Baskalandi. Mætti ég þessum síðhærða, skeggjaða fola á götu einni og fékk hjá honum knús. Sem ég bað ekki um, heldur kom hann brosandi til mín og breiddi út faðminn (eins og Jesús.) Sem að var æðislegt og mjög svo verðskuldað eftir það sem verður vægast sagt kallað öööööööööööööööömurlegur morgunn.
Þannig að núna trúi ég á Jesús (eða a.m.k. fallega síðhærða menn með skegg sem mæta manni á götum og taka mann í heitt fangið)
Þessi ægifagri maður á reyndar fleira sameiginlegt með J.K. Hann er kokkur og breytir þ.a.l. vatni í vín. Eða, hráu í eldað og almennum mat í gómsæti. Getur t.d. gert alveg suddalega góða omelettu úr kartöflum! Sem er náttúrulega ekkert minna en nútímakraftaverk. Mmm. Ég held að ég elski hann. Og svo heitir hann svo ógeðslega sexý nafni að það er bara rooooooooooooooosalegt! Seinna nafnið er Rodrigez.
Sem er bara total knickers-to-the-knees faster-than-a-speeding-bullet!
fimmtudagur, nóvember 01, 2007

Al Pacino cappucino
Ég gerði þau STÓRU, FEITU MISTÖK að horfa á Frankie & Johnny í vikunni. Ég horfði reyndar á hana 2x. Úff, púff súff lúff. Al Pacino er ógeðslega sexý.
Ætla að fara heim og hugsa ósiðlegar hugsanir um Micheal Corleone. (Totally indecent, illegal-in-20-states, Bible-says-no-to-it kind of thoughts)