<$BlogRSDURL$>
Killer Queen
þriðjudagur, janúar 22, 2008
 


You're as cool as ice

Jæja. Allir að hlusta á Kings of Leon. Vorið virðist vera óvenju snemma á ferðinni, af því að ég er alveg við það að missa meðvitund út af saurugum hugsunum sem leita á hugann á öllum tímum sólarhringsins. Fucking Sam Elliott. Og íslenska handboltalandsliðið. I am a love furn.

fimmtudagur, janúar 17, 2008
 



(Vááááá, ef þetta er ekki draumurinn á mynd: Sam Elliott og Cher, löðrandi í kynþokka og ljómandi af öllu því sem prýddi 9. áratuginn?? Ohhh!)

Sam Elliott er svo sexý að það er ógeðslegt. Það sem kom öllu þessu af stað var kvikmyndin/epíska stórverkið Road House, með Patrick Swayze og Kelly Lynch. Sam Elliott leikur goðsögnina Wade Garrett, sem er bæði útkastari/kyntröll og besti vinur Patrick Swayze. Soss! Í body-paint gallabuxum og með sítt hár, kafloðinn og rómantískur. Come to mummy, segi ég nú bara! Ohhh!

Annars er nú voða lítið að frétta. Er að telja niður í leikinn og er að hlusta á Hrossbandið (Band of Horses) og drekka Pepsi Light (Inga, relax. Coke can not always be the winner!) Var líka að spá í því hvort að ég ætti að hætta að vera bitur. En nei, ég fer ekkert að hætta því núna. Ég er orðin svo góð í því. Núna er það eins og drekka vatn eða anda.

En ég skal hætta að vera bitur ef Sam Elliott kemur brokkandi á hestbaki og parkerar hrossinu fyrir utan hurðina hjá mér. Og auðvitað kemur inn fyrir og skverar mig bak og fyrir. Ojjj. Djók. Nei, annars. Ekki djók.


Giddy-up!

þriðjudagur, janúar 15, 2008
 


Ahhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh!!!!!

Sweet mother of god. Sweet, sweet mother of god.


Powered by Blogger