Killer Queen
miðvikudagur, maí 28, 2008

Hún lifir
Hæjó. Já, ég tóri víst enn. Og er bara nokkurn veginn í stuði. Og hér kemur smá yfirlit yfir gjörðir mínar sl. vikur:
1. Borðaði krumpufranskar og horfði á þátt um Ungfrú Ísland. Sem var stórbrotið.
2. Fór í siglingu um nágrenni Reykjavíkur, Viðey og næreyjar. Varð ekkert sjóveik og var bara ógeðslega töff um borði í trillu.
3. Er búin að horfa á allar 4 seríurnar um ævintýri Jeeves & Wooster. What ho!
4. Er næstum því hætt að girnast Stríðs-Rykk (Warrick) úr CSI. Strippararnir og kókaínið ekki alveg að fletta mann nærklæðum seint á síðkvöldum (e. failure panty-peeler)
5. Fór á tónleika með Bobbaranum. Sem var ótrúlega skemmtilegt. I believe in Bob. And I believe in life after love.... whoooooooa.
6. Ég átti afmæli og varð 26 ára gömul. Sem er æði. Old age suits me like a glove.
7. Andlegt ástarsamband mitt við sænska kynlífsguðinn blómstrar sem aldrei fyrr. Honum að kenna að vera svona ógeðslega kynferðislegur.
What ho, kids. Lurrvv.